Ég sé ekkert svona gleraugnalaus
Ég sé ekkert svona gleraugnalaus hefur að geyma nýjar smásögur eftir Óskar Magnússon sem flestar fjalla um hversdagslegt fólk í venjulegu...
Also Available in:
- Amazon
- Audible
- Barnes & Noble
- AbeBooks
- Kobo
More Details
Ég sé ekkert svona gleraugnalaus hefur að geyma nýjar smásögur eftir Óskar Magnússon sem flestar fjalla um hversdagslegt fólk í venjulegu umhverfi. Við kynnumst viðkvæmu tónskáldi, járningamanni utan af landi, hjónum á ferðalagi í Feneyjum og fyrrverandi bankastjóra – og Hróar læknir, Ingveldur Melinda og gleðikonan Francois Girbaud stíga líka fram á sjónarsviðið.
Sögurnar eru fjölbreytilegar og í þeim er oft galsafenginn tónn en undir niðri býr alvara og stundum hárfín ádeila. Höfundur hefur einkar glöggt auga fyrir smáatriðum og gæðir sögupersónur sínar lífi með næmum skilningi á einkennum þeirra og hátterni.
- Format:Hardcover
- Pages:160 pages
- Publication:2010
- Publisher:JPV útgáfa
- Edition:
- Language:isl
- ISBN10:9935111539
- ISBN13:9789935111531
- kindle Asin:9935111539









